Kötturinn Mathilda þjáist af ættgengum sjúkdómi sem veldur því að augu hennar eru risavaxin. Mathilda er blind en lifir að öðru leyti nokkuð eðlilegu kattarlífi — fyrir utan nýtilkomna frægð.
Mathilda er nefnilega komin með fleiri en 40 þúsund fylgjendur á Instagram, þar sem eigendur hennar (sem kalla sig reyndar þjóna hennar) birta af henni myndir.
Eins og til dæmis þessa.