Auglýsing

Kvikmyndagerðarfólk snýr vörn í sókn

Leikstjórinn og framleiðandinn Friðrik Þór Friðriksson fer fyrir hópi kvikmyndagerðarfólks sem vinnur að nýrri kvikmyndahátíð. Stockish Film Festival fer fram í Reykjavík dagana 19. febrúar til 1. mars og leggur áherslu að á Íslandi sé allt til alls til kvikmyndagerðar, bæði fólk og tökustaðir. Þetta kemur fram á vef Hollywood Reporter.

Fjölmargir hagsmunaaðilar úr kvikmyndabransanum koma að hátíðinni og samkvæmt frétt Hollywood Reporter er takmarkið að leiða saman alþjóðlega stórlaxa í kvikmyndabransanum og fólk sem starfar í kvikmyndaiðnaðinum á Íslandi.

Þá verða sýnd brot úr verkefnum sem eru í vinnslu ásamt því að handritshöfundar verða leiddir saman. Reykjavíkurborg og Íslandsstofa eru á meðal styrktaraðila hátíðarinnar.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing