Aflögunargögn fram til 30. desember 2024 sýna að kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram. Líkur eru taldar aukast á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi þegar jafn mikið magn af kviku hefur safnast undir Svartsengi og fór þaðan í kvikuhlaupinu og eldgosinu 20. nóvember. Líkanreikningar sýna að þetta magn er á bilinu 12-15 milljónir rúmmetra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Ef kvikusöfnun heldur áfram á svipuðum hraða og undanfarið má gera ráð fyrir því að rúmmál kviku undir Svartsengi nái 12 milljónum m3 í lok janúar, en í fyrstu vikunni í febrúar verði það orðið um 13.5 milljónir m3.
Samkvæmt líkanreikningum sem byggja á nýjustu aflögunargögnum er kvikuinnflæðið nú rúmlega 3 m3/s, sem er svipaður hraði og fyrir síðasta eldgos. Miðað við þann hraða má því gera ráð fyrir því að líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni fari að aukast í lok janúar.
Líkönin byggja á áætluðu kvikuinnflæði á hverjum tíma og litlar breytingar á því flæði hafa áhrif á matið á mögulegum tímasetningum næsta eldgoss.
Nýjasta hraunbreiðan hættuleg göngufólki
Hættumat Veðurstofunnar hefur verið uppfært og gildir að öllu óbreyttu til 14. janúar 2025.
Helsta breytingin er á svæði 6 þar sem heildarhætta er nú metin nokkur (gul) en var áður metin töluverð (appelsínugul). Heildarhætta á svæði 6 er nú metin minni vegna þess að hætta á hraunflæði á svæðinu hefur lækkað.
Þótt hætta á hraunflæði sé nú talin minni en áður er hraunbreiðan enn heit og hættuleg göngufólki.
Jarðskjálftahrinur nærri Eldey algengar undanfarin ár
Afar lítil jarðskjálftavirkni hefur verið á Sundhnúksgígaröðinni frá því að síðasta eldgosi lauk 8. desember 2024.
Á öðrum nærliggjandi svæðum hefur þó verið nokkur jarðskjálftavirkni, en um 200 jarðskjálftar, þar af tveir yfir M3 að stærð, mældust í hrinu dagana 29. – 31. desember 2024 nærri Eldey á Reykjaneshrygg. Jarðskjálftahrinur nærri Eldey hafa verið algengar undanfarin ár, en hátt í 60 jarðskjálftar yfir M3 að stærð hafa mælst þar síðustu 4 ár.
Áfram mælast stöku skjálftar þar en hrinunni er að mestu lokið. Áfram mælast reglulega jarðskjálftar í vestanverðu Fagradalsfjalli. Þar hafa rúmlega 60 smáskjálftar mælst síðasta mánuðinn, flestir á um 6-8 km dýpi.