Gögn frá GPS-mælum sýna að landris í Svartsengi heldur áfram að mælast á jöfnum hraða. Líkanreikningar byggðir á þeim gögnum sýna einnig að kvikusöfnun undir Svartsengi hefur haldið áfram á svipuðum hraða síðustu vikur. Samkvæmt mælingum á landrisi og áætlun á hraða kvikusöfnunar svipar þróunin til fyrri atburða á svæðinu.
Myndmælingateymi Náttúrufræðistofnunar og Landmælinga Íslands hefur unnið úr gögnum sem sérfræðingar Eflu söfnuðu í drónaflugi yfir gosstöðvarnar þann 11. September. Gögnin sýna að hraunbreiðan sem myndaðist í síðasta eldgosi (22. ágúst – 5. september) var 61.2 milljón m3 og 15.8 km2 að flatarmáli. Gögnin sýna að síðasta gos var það stærsta á Sundhnúksgígaröðinni frá desember 2023. Þykkasti hluti hraunbreiðunnar er staðsettur í kringum gíginn sem var virkur lengst af.
Jarðskjálftavirkni hefur verið lítil síðustu tvær vikur við Sundhnúksgígaröðina. Nokkur virkni hefur þó verið í vestanverðu Fagradalsfjalli á 6-8 km dýpi frá því að eldgosi lauk þann 5. september. Einnig hefur verið töluverð virkni í Trölladyngju síðustu daga. Flestir skjálftanna á svæðinu eru litlir en sá stærsti mældist M3.0 að stærð þann 22. september rétt austan við Trölladyngju. Engin aflögun mælist á svæðinu við Trölladyngju.