Auglýsing

Kynjakvótinn í Gettu betur festur í sessi: „Þetta var einfaldlega feit pæling sem gekk upp“

Kynjakvóti á keppendur í Gettu betur hefur verið festur í sessi. Kvótinn var samþykktur árið 2013 og var hugsaður til reynslu í Gettu betur árin 2015 og 2016. Nú hefur verið ákveðið að aldrei megi fleiri en tveir af sama kyninu vera í liðum skól­anna en í hverju liði eru þrír þátt­tak­end­ur.

Sjá einnig: Sjö bestu augnablik TilfinningaTómasar í úrslitum Gettu betur

Ákvörðun um þetta var tek­in fundi stýri­hóps keppn­inn­ar. Þar sitja full­trú­ar þeirra fjög­urra mennta­skóla sem kom­ast í undanúr­slit í síðustu keppni ásamt full­trú­um Rík­is­út­varps­ins. Steinþór Helgi Arnsteinsson, annar dómara Gettu betur, fagnar því að kvótinn hafi verið festur í sessi.

„Þetta var einfaldlega feit pæling sem gekk upp,“ segir hann í samtali við Nútímann.

Það kom allt önnur og miklu skemmtilegri dýnamík í þáttinn. Sannaðist bara að þetta er ekki strákasport. Það er því mikið fagnaðarefni að stýrihópur Gettu betur hafi ákveðið að festa þessa reglu í sessi.

Nútíminn hefur heimildir fyrir því að hið sigursæla lið Menntaskólans í Reykjavík muni í fyrsta skipti í sögu skólans tefla fram tveimur stelpum í liðinu sínu.

Til­lag­an um kynjakvótann kom frá full­trú­um Rík­is­út­varps­ins á sínum tíma og studdu þrír mennta­skól­ar til­lög­una, Mennta­skól­inn í Reykja­vík, Mennta­skól­inn við Hamra­hlíð og Kvenna­skól­inn. Versl­un­ar­skóli Íslands studdi ekki til­lög­una.

Sjá einnig: Dónalegasta spurning í sögu Gettu betur? „Var ég að horfa á apa í 69 með sex ára dóttur minni?“

Steinþór verður dómari keppninnar sem hefst í janúar ásamt Bryndísi Björgvinsdóttur, sem hóf störf í síðasta vor. Steinþór er hins vegar að verða þaulsetnasti dómari í sögu Gettu betur og verður dómari í fjórða skipti á næsta ári. Skemmtikrafturinn Björn Bragi Arnarsson verður áfram spyrill.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing