Sónar Reykjavík fór fram í Hörpu um helgina og stemningin var frábær eins og myndböndin hér fyrir neðan sýna. Reykjavíkurdætur voru trylltar á fimmtudeginum. Trylltar.
Hér má sjá myndband frá fimmtudeginum. Allir að dansa!
Stemningin var ekki síðri á föstudeginum þegar þetta hamingjusama fólk var gripið í spjall.
Hér fangar myndband stemninguna
https://youtu.be/kHbM6H3wWPc
Sturla Atlas kom frá á laugardegi hátíðarinnar
Tuborg TV hitti Sturla Atlas á hátíðinni og ræddi við þá um Sónar Reykjavík. „Sónar er rosalega fersk og skemmtileg hátíð. Það er meira easy að vera á Sónar en á Airwaves því maður getur bara verið inni allan tímann og í Hörpu. Sem er ekki slæmt,“ segir Sturla. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.