80’s Barinn opnaði á föstudaginn með látum og eldfimum drykkjum. Barinn er staðsettur á efri hæð veitingastaðarins Lobser & Suff á Geirsgötu 3 og staðnum ku vera hægt að rifja upp stuðið og stemninguna sem ríkti á Casablanca, Klúbbnum, Hollywood, Broadway, Villta Tryllta Villa, Tunglinu, Skuggabarnum og Astró.
Miðað við myndirnar hér fyrir neðan þá skemmti fólk sér konunglega á opnunarkvöldinu á föstudag.