90% íslenskra ökumanna undir 45 ára aldri nota síma ólöglega undir stýri þrátt fyrir að sektir fyrir símanotkun við akstur hafi nýlega hækkað verulega. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem Zenter vann fyrir Sjóvá.
Karlotta Halldórsdóttir, verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá, segir ljóst að við þurfum að taka okkur á og leggja símanum við akstur í eitt skipti fyrir öll. Sjóvá er nú í herferð gegn símanotkun undir stýri og hér fyrir ofan má sjá fyrstu auglýsinguna í herferðinni. Myndbandið má sjá hér að ofan.
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar talar nær helmingur ökumanna í símann ólöglega undir stýri og yfir þriðjungur sendir eða les skilaboð. Karlotta segir þessar tölur sláandi. „Þetta eru mjög vondar niðurstöður og ljóst að umferðaröryggi er ógnað með þessari þróun.“
Á sama tíma töldu nær allir þátttakendur í rannsókninni það hættulegt að nota símann undir stýri en það virðist því miður ekki hafa áhrif á hegðun þeirra. „Það er mikilvægt að ökumenn átti sig á að þetta er ekki þeirra einkamál, þetta hefur ekki bara áhrif á þeirra öryggi heldur allra annarra í umferðinni líka,“ segir Karlotta.
Meirihluti svarenda vissi að sektarfjárhæðir fyrir símnotkun hefðu nýlega verið hækkaðar verulega en það virðist því miður ekki hafa nægilegan fælingarmátt ennþá.
Ef allir sem tala í síma undir stýri án handfrjáls búnaðar myndu fá eina sekt á ári fyrir athæfið yrði heildarupphæð sektanna 4,3 milljarðar.
„Það telst vítavert gáleysi að nota síma við akstur og því hafa tryggingafélög skert eða fellt niður bætur og jafnvel gert endurkröfu á ökumenn þar sem sýnt hefur verið fram á að símnotkun hafi ollið umferðarslysi. Notkun farsíma undir stýri er því ekki bara stórhættuleg heldur getur hún leitt af sér verulegt fjárhagslegt tjón fyrir ökumann ef slys verður,“ segir Karlotta.