Auglýsing

Myndir: Manuela kynnti nýju úlpuna sem hún hannaði fyrir Zo-On

Manuela Ósk hefur hannað nýja úlpu í samstarfi við Zo-On og var hún frumsýnd á föstudagskvöld í verslun Zo-On í Kringlunni. Þar var einnig sýndur fyrsti þátturinn af Hannað með Zo-On sem verður á dagskrá Stöðvar 2 á miðvikudagskvöldum í nóvember. Í þættinum er fylgst með hönnun úlpunnar.

Fjöldi fólks kíkti í partíið og Manuela var mætt í úlpunni

Manuela útskrifaðist úr fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands síðastliðið vor en er flutt til Los Angeles þar sem hún leggur stund á framhaldsnám við Fashion Institute of Design and Merchandising.

Í Fréttatímanum á dögunum sagði hún námið lofa góðu og telur sig vera á réttri hillu. Reynsla hennar af samfélagsmiðlum reynist henni vel í náminu en það er ákveðin pressa frá skólanum að nemendur séu virkir á sem flestum miðlum.

„Þau vilja til dæmis að við séum með bloggsíðu og Youtube-rás. Ég þarf því aðeins að fara að girða mig í brók,“ sagði Manuela. Hún lét nýlega undan pressu með bloggsíðu og opnaði síðuna heymanu.com.

En það var ástæða til að brosa í partíinu

ph4a8663

????????????

ph4a8635

Fólk var svona hresst

ph4a8644

ph4a8649

Og plötusnúðurinn var einbeittur

ph4a8630

Sem gaf fólkinu enn meiri ástæðu til að brosa

ph4a8632

ph4a8761

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing