Sólrún Diego tilkynnti fylgjendum sínum á Snapchat frá því í gær að hún hyggðist hætta á miðlinum. Sólrún hefur verið á meðal vinsælustu Íslendinganna á miðlinum og þakkar hún fylgjendum sínum fyrir yndislega tíma sem hafa gefið henni allskonar tækifæri.
Sólrún hefur sýnt almenningi frá lífi sínu í gegnum Snapchat undanfarin ár en hún er þekktust fyrir að gefa góð og frumleg ráð við heimilisþrif.
Aðdáendur hennar hafa tekið fréttunum misvel en hún mun halda áfram að nota samfélagsmiðilinn Instagram.
Sólrún Diego er hætt á Snapchat sem þýðir að við munum öll fá pissulykt í sófana okkar, tyggjóklessur í ullarsokkana og börnin verða áfram með lús.
— Steindi jR (@SteindiJR) January 31, 2019
Sólrún Diego hætt á Snapchat. Svartur dagur fyrir edik framleiðendur.
— Árni Helgason (@arnih) January 31, 2019
Sólrún Diego segir skilið við snappa frænda í dag.
Flagga í hálfa í dag og klæðist öllu svörtu, Sólrún okkar diego nú segi eg bara eins og ABBA sagði Thank you for the music, síðustu 3 árin— Drunklexander Aron (@AlexanderAronG) January 31, 2019