Bradley Cooper kom óvænt fram með Lady Gaga á tónleikum söngkonunnar í Las Vegas í gærkvöldi. Þau fluttu saman lagið Shallow úr kvikmyndinni A Star is Born. Sjáðu myndbandið hér að neðan.
Lagið var tilnefnt til Óskarsverðlauna en Lady Gaga var einnig tilnefnd til verðlaunanna fyrir hlutverk sitt í myndinni. Lagið hefur heldur betur slegið í gegn eftir að myndin fór í sýningar í haust.