Körfuboltamaðurinn Lamar Odom berst nú fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi í Las Vegas. Odom var fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahúsið eftir að hann veiktist á vændishúsinu Dennis Hof’s Love Ranch í suðurhluta Nevada-fylkis í gærkvöldi.
Haft er eftir Dennis Hof, eiganda vændishússins, á vef NBC fréttastofunnar að Odom hafi verið froðufellandi og ælt blóði áður en sjúkraliðar mættu á staðinn.
Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að Khloe Kardashian, fyrrverandi eiginkona Odom, sé með honum á sjúkrahúsinu. Hún er óhuggandi, samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly en hún var þegar stödd í Las Vegast þegar Odom veiktist. Kim Kardashian og Kris Jenner, móðir þeirra, eru með Khloe og Rob, bróðir þeirra, ku vera á leiðinni á staðinn til að vera með Odom ásamt Scott Disick.
Ástand Odom er tvísýnt, samkvæmt fréttasíðunni TMZ, sem sagði fyrst frá málinu. Þar kemur fram að hann sé í dái. Fjölmiðlafulltrúi hans hvetur þó fólk til að bera virðingu fyrir einkalífi hans og fjölskyldu hans. „Ekki hlusta á rangar upplýsingar um málið sem hafa farið á kreik,“ sagði hún í yfirlýsingu án þess þó að útskýra það nánar.
Khloe Kardashian og Lamar Odom voru gift í fjögur ár en skildu í júlí á þessu ári. Hún sagði í viðtali í september að hann hafi verið ástin í lífi hennar.
Hjónaband okkar var frábært. Vildi ég að hann hefði reynt að aðeins betur? Já. Held ég að hann hafi kannski ekki haft orku í það vegna þess að hann þurfti að berjast við svo margt annað? Já.
Odom hefur barist við eiturlyfjafíkn undanfarið sem batt enda á glæsilegan körfuboltaferil hans. Hann vann meðal annars meistaratitil með Los Angeles árin 2009 og 2010.