Körfuboltamaðurinn Lamar Odom er ekki lengur í lífshættu. Hans bíður löng og ströng endurhæfing næstu mánuði og samkvæmt frétt TMZ ætlar Khloe Kardashian að styðja við bakið á honum alla leið.
Odom var fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahús í Las Vegas í síðustu viku eftir að hann veiktist á vændishúsinu Dennis Hof’s Love Ranch í suðurhluta Nevada-fylkis. Odom hafði notað kókaín og hættulegt stinningarlyf sem lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hafði varað við og hvatt fólk til að henda.
Khloe Kardashian og Lamar Odom voru gift í fjögur ár en skrifuðu undir skilnaðarpappírana í júlí á þessu ári. Dómari hefur þó ekki tekið skilnaðinn fyrir og þau eru því enn þá tæknilega séð gift.
Samkvæmt frétt TMZ hafa læknar sagt vinum og fjölskyldu Odom að endurhæfing muni taka marga mánuði og að enn sé óvíst hversu miklum varanlegum skaða líkami hans varð fyrir.
Þá segir í fréttinni að Khloe Kardashian ætli að styðja við bakið á honum alla leið og að hún hafi ekki vikið frá honum síðustu daga.