Landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson, blandaði sér í umræðuna um nafna sinn Ragnar Önundarson á Twitter í gær. Ragnar sem er lykilmaður í íslenska landsliðinu í knattspyrnu er ósáttur við hvernig viðbrögðin voru við ummælum Ragnars Önundarsonar, í garð Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur. Tístið fékk töluverða athygli og margir furða sig á skoðun knattspyrnukappans.
Forsaga málsins er sú að Ragnar Önundarson birti mynd af Áslaugu Örnu, á Facebook-síðu sinni, síðastliðinn þriðjudag, sama dag og umfjöllun um kynferðislega áreitni sem konur í stjórnmálum upplifa komst í hámæli. Skilaboðin sem Ragnar lét fylgja með myndinni þóttu kristalla hluta þess vanda sem konur í stjórnmálum standa frammi fyrir.
„Meðferðin sem Raggi Önundar hefur fengið fyrir nákvæmlega ekki neitt, er gjörsamlega óásættanleg,“ skrifar Ragnar meðal annars í tístinu sem sjá má hér að neðan.
https://twitter.com/sykurinn/status/934801103321030656
Margir hafa tjáð sig um málið á Twitter og sagt að með þessu sé landsliðsmaðurinn að sýna baráttunni óvirðingu og lýsa slæmu viðhorfi til kynbundins misréttis. Hér að neðan má sjá brot af umræðunni um tíst Ragnars Sigurðssonar.
Fótboltakóngarnir og sleikjurnar læka þetta. Þessi ummæli dæma sig sjálf. #6dagsleikinn #ekkiveraragnar https://t.co/IHB4qmDo37
— Daníel Magnússon (@danielmagg77) November 26, 2017
"Nákvæmlega ekki neitt"…svona fyrir utan sexist og niðrandi ummæli um þingkonu?
— Anna! (@annavignisd) November 27, 2017
Finnst þer ,,ekki neitt’’ að gefa i skyn að Aslaug se að bjoða kynferðislegri areitni heim með þvi að hafa selfie í profile á fb?
— Helga Sigrún (@heilooog) November 27, 2017
Fyrir ,,nákvæmlega ekki neitt". Takk fyrir að súmmera upp viðhorf þitt til kynbundins misréttis í einni setningu. Fínt að vita hvar fólk stendur ?
— Helga D. Isfold S. (@Hamingjan) November 27, 2017
Giska á að þið séuð skyldir eða að þú elskir nafnið þitt meira en allt….
Áfram Ísland sem er þó að þú fattir það ef til vill ekki en er sem betur fer byggt af GÓÐU fólki…. pic.twitter.com/Zc6x7CuBim— Sigrun Þula Jonsdottir (@Dimma16) November 27, 2017