Landsliðsmennirnir Aron Einar Gunnarsson, Rúrik Gíslason, Sverrir Ingi Ingason, Alfreð Finnbogason og Jóhann Berg Guðmundsson eru í fríi í Miami í Flórídafylki Bandaríkjanna.
Sjá einnig: Landsliðsmenn mættir til sólarlanda
Strákarnir hafa verið duglegir að birta myndir frá ferðinni á Instagram síðum sínum en sú nýjasta, sem landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson birti, er sú rosalegasta hingað til. Þar má sjá þá félaga með Bandaríska leikaranum Jamie Foxxx.