Auglýsing

Landsliðsmenn stíga sín fyrstu skref í nýrri auglýsingu og þú færð pottþétt gæsahúð

N1 frumsýndi í gær nýja auglýsingu þar sem má sjá landsliðsmenn okkar stíga sín fyrstu skref í fótboltanum. Auglýsingin hefur slegið í gegn enda ansi mögnuð. Horfðu á hana hér að neðan.

Í auglýsingunni má sjá landsliðsmennina Albert Guðmundsson, Alfreð Finnbogason, Birki Bjarnason og Jón Daða Böðvarsson.

Auglýsingin er svipuð auglýsingu sem N1 gaf út á Evrópumótinu árið 2016 en þar mátti sjá meðal annars Hannes Þór, Ragnar Sigurðsson og Kolbein Sigþórsson á sínum yngri árum.

„Við erum stolt af strákunum okkar. Við erum líka stolt af því að hafa tekið þátt í grasrótarstarfi KSÍ um áratuga skeið og getað auðveldað krökkum að spila fótbolta og jafnvel að láta drauma sína rætast. Við verðum áfram til staðar,” segir í tilkynningu N1.

Sjáðu auglýsinguna hér að neðan

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing