Todd Philips, leikstjóri nýrrar myndir um Jókerinn, hefur loksins frumsýnt aðalleikarann Joaquin Phoenix í titilhlutverkinu. Sjáðu færslu frá Todd á Instagram hér fyrir neðan.
Myndin hefur ekki ennþá fengið nafn en Jókerinn er sem kunnugt er erkióvinur ofurhetjunnar Batman.
Todd Phillips birti mynd af Joaquin í hlutverkinu í síðustu viku og skrifaði aðeins „Arthur“ undir myndina. Var það vísun í raunverulegt nafn Jókersins: Arthur Fleck en myndin sýndi hann ekki í gervinu.
Í myndinni fylgjum við Jókernum eftir og sjáum hann breytast úr grínista í glæpamann.