Maður á sjötugsaldri hefur verið ákærður fyrir að hafa banað sambýliskonu sinni, sem var á fimmtugsaldri, á heimili þeirra á Akureyri þann 22. apríl síðastliðinn. Þá er hann einnig ákærður fyrir stórfellt brot í nánu sambandi en hann er sagður hafa beitt konuna margvíslegu ofbeldi og misþyrmt henni í aðdraganda andlátsins. RÚV greindi fyrst frá.
Maðurinn beitti konuna einnig ofbeldi þriðjudagskvöldið 6. febrúar en samkvæmt ákærunni hlaut konan nefbrot, mar aftan á háls og hnakka, mar undir hægra auga og mar á hægri handlegg. Þetta kemur fram í ákærunni en málið gegn manninum var þingfest nú í vikunni og er fyrirtaka þess á dagskrá þann 3. september í Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Þinghald verður lokað en í ákærunni er þess krafist að maðurinn greiði tveimur fjölskyldumeðlimum konunnar miskabætur – sex milljónir króna hvorum.