Liam Neeson kemur fram í 250. þættinum af Family Guy sem verður sýndur á sunnudaginn.
Þátturinn heitir því viðeigandi nafni Fighting Irish og Neeson lemur fjölskylduföðurinn Peter Griffin í klessu í þættinum. Myndband af þessum ójafna slag má sjá hér frir neðan.
Þetta gerist eftir að Peter og félagar mæta í óleyfi á tökustað nýjustu kvikmyndar Neeson, eitthvað sem Peter á eftir að sjá eftir.
https://youtu.be/gAAOrJNSuIk