Lík mannsins sem fór í Ölfusá þann 19. maí síðastliðinn og hefur verið leitað að síðan fannst í morgun. Menn á göngu við ána fundu líkið í landi Arnarbælis í Ölfusi og tilkynntu til lögreglu að því er kemur fram í frétt á vef RÚV.
Björgunarsveitarmenn frá Björgunarfélagi Árborgar aðstoðuðu lögreglu við vinnu á vettvangi.
Sjá einnig: Nota þyrlu og dróna við leitina að manninum sem fór í Ölfusá
Umfangsmikil leit stóð yfir að manninum eftir að vegfarandi tilkynnti að hann hefði séð mann fara fram af brúnni yfir Ölfusá og lenda í ánni. Meðal annars var notast við dróna sem flogið var eftir ánni og þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðaði einnig við leitina.