Karlmaður fannst látinn í tjörn við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarkirkju við Strandgötu um hádegisbil í dag. Ekki er talið að neitt saknæmt hafi átt sér stað. Það er Vísir.is sem greinir frá þessu.
Fjölmennt lið lögreglu og annarra viðbragðsaðila var sent á staðinn og nokkuð stórt svæði í kringum tónlistarskólann og kirkjuna girt af.
-Fréttin verður uppfærð