Auglýsing

Lögðu hald á mörg kíló af fíkniefnum og skotvopn: 18 með stöðu sakbornings

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á samtals rúmlega sex kíló af kókaíni og amfetamíni í umfangsmiklu máli sem hefur verið til rannsóknar hjá embættinu um nokkurt skeið. Það snýr að skipulagðri brotastarfsemi, innflutningi og sölu og dreifingu á fíkniefnum hér á landi, peningaþvætti og vopnalagabrotum.

Lögregla lagði meðal annars hald á fíkniefni, lyf, stera og um 40 milljónir króna í reiðufé, auk nokkurra peningatalningavéla. Þá haldlagði lögregla ýmsar gerðir af skotvopnum og öðrum vopnum, m.a. skammbyssu búna hljóðdeyfi.

Á þriðja tug manna voru handteknir í þágu rannsóknarinnar og framkvæmdar voru rúmlega þrjátíu leitir í umdæminu í tengslum við hana. Flestir sakborninganna voru handteknir í aðgerðum lögreglu um miðjan apríl, en þá stóð hópurinn fyrir komu tveggja manna sem fluttu fíkniefni til landsins með skemmtiferðaskipi. Í kjölfarið voru fimm aðilar úrskurðaðir í gæsluvarðhald og sæta því enn, utan eins þeirra. Sá var færður í afplánun vegna eldri dóms að loknu einnar viku gæsluvarðhaldi. Í dag hafa 18 aðilar stöðu sakbornings í málinu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn málsins en við hana og aðgerðir sem gripið var til naut hún aðstoðar lögreglumanna frá öðrum embættum, auk Tollsins og Landhelgisgæslunnar.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing