Bindi handboltakempunnar Loga Geirssonar í HM stofunni á RÚV hefur vakið mikla athygli í dag. Nútíminn fjallaði um viðbrögð fólks á Twitter sem skiptist í fylkingar, með og á móti bindinu.
Nútíminn setti af stað könnun um hvort bindið sé gott eða slæmt og fyrstu niðurstöður benda til þess að þjóðin sé klofin í málinu.
Sjálfur hefur Logi birt sitt innlegg um málið. Og það gæti ekki verið betra.
Bindið er blátt #emruv
— Logi Geirsson (@logigeirsson) January 17, 2016
Hann var sem sagt ekki einn af þeim sem sá hvítan og gylltan kjól.