Auglýsing

Logi Bergmann hefnir sín á Sigríði Elvu

„Ég skil ekki hvernig í andskotanum hann náði þessu. Ég skrapp bara í kaffi!“ segir sjónvarpskonan Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir.

Mikla athygli vakti þegar Sigríður Elva náði loksins að hefna sín á Loga Bergmann í september en sá síðarnefndi hefur hrekkt hana á vinnustað þeirra á 365 með marvíslegum hætti síðustu ár.

Logi náði að hefna sín á ný í dag þegar hann komst í tölvu Sigríðar og lét til sín taka.

Hann sendi út fjölmargar vinabeiðnir í nafni Sigríðar, meðal annars á spákonur, fólk sem býður upp á heilun og dáleiðslu. Þá sendi hann vinabeiðnir á einhvers konar brauðtertuþjónustu, álfagallerí, húðflúrstofu og fatasölu.

Mynd sem Sigríður birti af vinabeiðnaflóðinu má sjá hér fyrir neðan:

Þá stillti hann tölvupóstinn hennar þannig að þessi skilaboð bárust þeim sem reyndu að senda henni póst:

522068_10152989759009155_6499127252158811356_n

Ekki nóg með það. Sigríður birti skýr skilaboð til á vegg sínum: „Ég veit hvar þú átt heima, Logi“. Þegar hún brá sér frá í nokkrar sekúndur komst Logi í tölvuna hennar á ný og breytti skilaboðunum í: „Logi ég elska þig“.

Spennandi verður að sjá hvort og þá hvernig Sigríður nær sér niður á Loga, sem er alræmdur hrekkjalómur og gaf til dæmis út Handbók hrekkjalómsins árið 2012. Þá flytur hann fyrirlestra um vinnustaðargrín þar sem Sigríði bregður nokkuð oft fyrir.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing