Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af fjórum mönnum vegna máls sem hún hefur til meðferðar. Eru mennirnir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu í Reykjavík í síma 444 1000.
„Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið adalsteinna@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningu sem lögreglan birti á Facebook í dag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af fjórum mönnum vegna máls sem hún hefur til meðferðar, og eru…
Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Mánudagur, 1. október 2018