Lögreglan í London, höfuðborg Englands, leitar nú þriggja sundmanna sem er saknað eftir sundsprett í Thames ánni. Íbúar borgarinnar hafa margir hverjir kælt sig niður með því að synda í ám og vötnum en mikill hiti hefur verið í borginni undanfarna daga. Þetta kemur fram á vef Guardian.
Í gærkvöldi var tilkynnt um að þrír sundmenn hefðu ekki skilað sér aftur upp úr ánni. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglur er talið að einn mannanna sé 22 ára gamall.