Lögreglan í Vestmannaeyjum lýsir eftir Helga Ingimar Þórðarsyni, 21 árs gamall. Helgi er 192 cm á hæð og sást síðast klæddur í svartar buxur, svarta hettupeysu og dökkgrænann bomberjakka.
Síðast er vitað um ferðir Helga við Herjólfsdal síðastliðna nótt.
Ef vitað er um ferðir Helga á að hafa samband við lögreglu í síma 112.