Auglýsing

Lögreglan leitar að ökumönnum Teslu og smárútu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þarf nauðsynlega að ná tali af tveimur ökumönnum í tenglum við rannsókn hennar á banaslysi á Sæbraut í Reykjavík um síðustu helgi. Annar ók hvítri Tesla bifreið og hinn ljósri smárútu, en báðum bifreiðunum var ekið þarna í norðurátt skömmu eftir miðnætti aðfaranótt sl. sunnudags, þ.e. á vegarkaflanum á Sæbraut á milli Súðarvogs og Kleppsmýrarvegar.

Ökumennirnir eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000.

Jafnframt er minnt á að vitni að slysinu, eða aðdraganda þess, eru beðin um að hafa samband við lögreglu. Upplýsingum má koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í síma 444 1000.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing