Auglýsing

Lögreglan staðfestir að Birnu var ráðinn bani

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að krufning staðfesti að Birna Brjánsdóttir var myrt. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Í morgun var staðfest að líkið sem fannst við Selvogsvita á sunnudag sé af Birnu. Lögregla hafði áður talið það mjög líklegt að skera þurfti úr um það með formlegum hætti.

RÚV greinir frá því að niðurstaða krufningar taki af öll tvímæli um dánarorsök Birnu en lögregla greinir ekki frekar frá niðurstöðu krufningar fyrr en staðfest skýrsla réttarmeinafræðings liggur fyrir. Hugsanlegt er að það verði ekki fyrr en eftir helgi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing