Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af ökumanni hvíta bílsins, sem var ekið vestur Óseyrarbraut í Hafnarfirði laugardaginn 14. janúar kl. 12.24.
Tekið skal skýrt fram að ökumaðurinn er ekki grunaður um neitt misjafnt, en hann gæti hugsanlega búið yfir upplýsingum sem kunna að nýtast lögreglu við rannsókn máls Birnu Brjánsdóttur.
Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Viti aðrir deili á bifreiðinni og ökumanni hennar eru hinir sömu beðnir um að koma þeim upplýsingum til lögreglu í síma 444 1000, í einkaskilaboðum á Facebook-síðu ögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is