Lygasaga þar sem fæðingarstaður Donalds Trump er dreginn í efa hafa ferðast hratt um internetið undanfarið. Á myndinni hér fyrir neðan, sem hefur kemur fram að Trump sé fæddur í Pakistan. Þar segir að foreldar hans hafi dáið í bílslysi og því hafi hann verið ættleiddur til Bandaríkjanna.
Það verður að viðurkennast að þeir eru frekar líkir
Myndin af hinum „unga Trump“ er frá árinu 2009 og er tekin í Afganistan. Trump er hins vegar af þýskum ættum en ekki pakistönskum. Donald Trump hefur oft dregið í efa að Barack Obama sé fæddur í Bandaríkjunum og krafist þess að hann birti fæðingarvottorð sitt.
Á meðan flestir sáu í gegnum lygina um fæðingarstað Trump þá féll meðal annars fréttastöð frá Pakistan fyrir þessu ásamt nokkrum vefsíðum.
Ljósmyndarinn sem tók myndina af stráknum í Afganistan, Massoud Hossaini, var nokkuð hissa á fréttaflutningi fréttasöðvarinnar frá Pakistan
Some of Pakistani media use a photo taken by myself to prove that #Trumps is originally from #Pakistan!!!! This is a joke!?
— Massoud Hossaini (@Massoud151) November 16, 2016