Auglýsing

Lýsingin á aðgangi Bjarna Ben á Ashley Madison gerir furðulegt mál enn þá furðulegra

Þóra Margrét Baldvinsdóttir, eiginkona Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, segir í færslu sinni á Facebook í dag að þau hjón hafi búið til aðgang á vefnum Ashley Madison árið 2008 og aldrei notað hann eftir það.

Stundin greinir hins vegar frá því að aðgangurinn hafi verið uppfærður að minnsta kosti þrisvar sinnum frá því að hann var stofnaður, síðast í ársbyrjun 2013.

Uppfært kl. 16.32: Ólafur Nielsen, einn stofnenda stafræna vöruþróunarfyrirtækisins Kolibri, segir að um vélræna uppfærslu á öllum gagnagrunni Ashley Madison sé að ræða.

Eins og fram kom á Nútímanum í dag eru Bjarni og Þóra Margrét skráð á vefinn umdeilda Ashley Madison. Þóra segir í færslu á Facebook að þau hafi skráð sig fyrir forvitnissakir.

Stundin greinir einnig frá því að eftirfarandi lýsing sé gefin upp á aðganginum:

Its about being interested in a nice looking woman, wanting to have an intelligent and fun conversation and good…very good sex. Im not from the States but do travel quite often.

Bjarni og Þóra Margrét voru með notendanafnið IceHot1 á vefnum Ashley Madison. Þetta kemur fram á Vísi.

Vefurinn Ashley Madison leiðir saman gift fólk og fólk í samböndum sem hefur áhuga á að halda fram hjá maka sínum. Vefurinn komst í heimsfréttirnar á dögunum þegar tölvuþrjótar réðust á vefinn og stálu þaðan upplýsingum um 37 milljónir notendur vefsins.

Gamalt netfang Bjarna frá því hann var stjórnarformaður N1 er að finna í gögnunum.

„Kæru vinir. Ekki er öll vitleysan eins. Okkur hjónum hafa borist margar ábendingar um að nú sé talsvert rætt manna í milli um að gamalt netfang Bjarna tengist gögnum af Ashley Madison vefnum sem dreift hefur verið á netinu,“ segir Þóra Margrét á Facebook-síðu sinni.

„Svona getur forvitnin leitt mann í gönur. Við heyrðum um þennan umdeilda vef í erlendum fréttum fyrir um 7 árum. Í framhaldi af því skoðuðum við vefinn fyrir forvitnissakir, en til þess þurfti að fylla út þar til gert form, skrá netfang, erlent póstnúmer og fleira sem við gerðum í algjörum hálfkæringi og af léttúð,“ segir hún.

Hún segir þau hjón aldrei síðan hafa farið inn á vefinn.

„Það var aldrei greitt fyrir skráningu eða aðgang að vefnum. Þessi heimsókn hefur ekki leitt til samskipta við nokkurn mann, hvað þá trúnaðarbrots af neinum toga. Ekki er allt sem sýnist á netinu,“ segir hún.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing