Auglýsing

Lystigarðurinn að breytast í drullusvað eftir skemmdarverk: „Þetta gerist ekki í tómarúmi“

Unnar hafa verið miklar skemmdir á grasflötinni í Lystigarðinum í Hveragerði með því að aka vespum eða álíka ökutækjum þar. Þetta kemur fram á vef bæjarfélagsins en þar segir að grasflötin sé sérstaklega viðkvæm nú þegar svo mikið rignir „…en það virðist draga að sér skemmdarvarga sem hafa gaman af því að eyðileggja þennan fallega garð okkar.“

Þá segir að nýlega hafi garðyrkjudeild bæjarins lokið við að þökuleggja í sár í garðinum en nú er mikið af þeirri vinnu unnið fyrir gíg.

Illa farin flöt eftir skemmdarvarga // Mynd: Vefsíða Hveragerðis

Mun ekki nýtast til hátíðarhalda ef skemmdarverkin halda áfram

„Ef fram heldur sem horfir þá verður þessi grasflöt endanlega að svaði og mun þá ekki nýtast til hátíðarhalda eins og verið hefur og Lystigarðurinn ekki sama prýði sem við höfum verið stolt af,“ segir á vefsíðu Hveragerðis.

„Þetta er langt því frá í fyrsta skipti sem skemmdarverk eru unnin á grasflötinni en líklegast eru þessi þau verstu hingað til.“

Þá auglýsir bæjarfélagið eftir þeim sem veit hverjir skemmdarvargarnir eru.

„Þetta gerist ekki í tómarúmi og einhver veit hverjir þessir aðilar eru. Við hvetjum þá sem hafa einhverjar upplýsingar að snúa sér til Lögreglunar á Suðurlandi í tölvupóstfangið: sudurland@logreglan.is

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing