Madonna þreytist ekki á að vera milli tannanna á fólki þrátt fyrir að vera komin langt á sextugsaldurinn. Því fékk Drake að finna fyrir í gærkvöldi.
Poppdrottningin Madonna steig óvænt á svið á Coachella-hátíðinni á Kaliforníu á sunnudagskvöld á tónleikum Drake. Madonna lét verkin tala og skellti sér í sleik við söngvarann sem virtist hissa. Myndband af kossinum má sjá hér fyrir neðan.
„Hvað í fjandanum gerðist?“ sagði Drake hlæjandi eftir kossinn.
„Ég er Madonna, tík,“ sagði hin 56 ára gamla söngkona áður en hún yfirgaf sviðið.
Madonna hefur ekki komið fram á hátíðnni síðan árið 2006.
https://www.youtube.com/watch?v=GZgQjN0aNHM