Einn maður er látinn eftir líkamsárás við bæinn Æsustaði í Mosfellsdal í kvöld. Sex manns hafa verið handteknir vegna málsins, fimm karlmenn og ein kona, sem sagt er tengjast handrukkun. Þetta kemur fram á vef RÚV. Hinn látni var á fertugsaldri og var úrskurðaður látinn á Landspítalanum í Fossvogi, líkt og kemur fram á mbl.is.
Íbúi á Æsustöðum varð vitni að árásinni, líkt og kemur fram í frétt RÚV. Hann kaus aftur á móti að tjá sig ekki um málið þar sem lögregla hafði beðið hann um að gera það ekki.
Sérsveit ríkislögreglustjóra ásamt lögreglu, slökkviliði og sjúkraflutningamönnum voru kallaðir á vettvang. Í frétt Vísis um málið kemur fram að tæknideild lögreglunnar sé enn að störfum.