Guðmundur Benedikt Baldvinsson, sem lýst var eftir á mánudag, fannst látinn á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Guðmundur, var 55 ára, lætur eftir sig tvö börn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Aðstandendur vilja koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem veittu aðstoð við leitina að Guðmundi.