Maðurinn, sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri á sunnudag, er meðal annars grunaður um að hafa ekki komið henni til aðstoðar. Það er Rúv sem greinir frá þessu.
Sjá einnig: Handtekinn vegna andláts konunnar á Akureyri: „Talinn hafa verið á vettvangi þegar konan lést“
Í gæsluvarðhaldsúrskurðinum sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær kemur fram að rökstuddur grunur sé um að maðurinn hafi brotið gegn fyrstu og/eða fjórðu málsgrein 220. greinar hegningarlaga. Þær eru:
1. málsgrein: „Hver, sem kemur manni í það ástand, að hann er án bjargar, eða yfirgefur mann, sem hann átti að sjá um, í slíku ástandi, skal sæta fangelsi allt að 8 árum. “
4. málsgrein: „Hver sá sem í ábataskyni, af gáska eða á annan ófyrirleitinn hátt stofnar lífi og heilsu annarra í augljósan háska skuli sæta fangelsi allt að fjórum árum.“
Í úrskurðinum segir jafnframt að ekki hafi verið hægt að taka skýrslu af manninum á sunnudag vegna lyfjaáhrifa og því sé saga hans ekki ljós.