Auglýsing

Mamma Özru var beðin um að ala ekki upp annan Breivik á Íslandi

Mamma Özru Crnac, tvítugrar konu frá Bosníu, fékk skilaboð á Facebook þar sem hún var beðin um að ala ekki „fleiri Breivik“ hér á landi. Þar vísaði viðkomandi í hryðjuverkamanninn og fjöldamorðingjann Anders Breivik.

Þetta kemur fram í viðtali við Özru á vef Víkurfrétta en þar segist hún hafa orðið fyrir aðkasti vegna trúar sinnar en þetta séu þau ummæli sem sitji hvað mest eftir hjá henni. Azra er múslimi og hefur búið alla sína ævi á Íslandi. Sjáðu viðtalið hér fyrir neðan.

Henni líður ekki vel þegar þegar hryðjuverk eru framin af öfgasinnuðum Íslamistum í heiminum.

„Ég skammast mín svo innilega fyrir það. Milljónir múslima eins og ég þurfa að gjalda þess að ákveðnir einstaklingar ákveði í einhverju rugli að gera þetta og valda svona miklu tjóni,“ sagði Azra og vísar til þess að hún tilheyri sömu trúarbrögðum.

Hún segist upplifa þetta á svipaðan hátt og ef frændi hennar væri fullur í veislu. „Þetta er svona tilfinning eins og ég eigi eitthvað í þessu en samt er ég ekki þátttakandi.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing