Auglýsing

Maradona sofnaði, gaf áhorfendum fingurinn og var borin út eftir leik Argentínu og Nígeríu: „Það er í lagi með mig“

Argentíska fótboltagoðsögnin Diego Maradona vakti mikla athygli í spennuþrungnum leik Argentínu og Nígeríu á HM í gær. Kappinn þurfti á aðstoða sjúkraliða að halda í leiknum og fregnir bárust af því að hann hafi verið fluttur á sjúkrahús eftir leikinn. Á Instagram-síðu sinni neitar hann að hafa farið á sjúkrahús og segist vera við góða heilsu.

Svo virðist sem tilfinningarnar hafi borið Maradonna ofurliði enda mikið í húfi fyrir Argentínu í leiknum. Furðuleg hegðun hans vakti athygli áhorfenda en hann dansaði við nígerískan stuðningsmenn, grét, sofnaði í hálfleik og gaf á áhorfendum fingurinn þegar Argentína tryggði sér sigur á Nígeríu. Myndavélarnar virtust einnig ná myndum af hvítu dufti í kringum kappann. Hann sagðist sjálfur hafa drukkið of mikið hvítvíni á leiknum og það útskýri hegðun hans.

Sports Illustrated birti myndband á Twitter-síðu sinni eftir leikinn þar sem aðstoðarfólk styður Maradonna út af leikvanginum.

https://twitter.com/SInow/status/1011714176157396998?ref_src=twsrc%5Etfw&ref_url=http%3A%2F%2Fuk.businessinsider.com%2Fworld-cup-diego-maradona-hospitalised-after-argentina-win-2018-6

Maradona birti síðan mynd á Instagram-síðu sinni eftir leikinn þar sem rússneskur læknir sést hlúa að goðsögninni.

„Ég vil segja öllum að það er í lagi með mig. Ég fór ekki á sjúkrahús. Mér var mjög illt í hálsinum í hálfleik og læknirinn skoðaði mig. Hann mælti með því að ég færi heim fyrir seinni hálfleik. Ég vildi vera áfram því við vorum að fórna öllu. Hernig gat ég farið?“

https://www.instagram.com/p/Bkgtn_ahCQo/?taken-by=maradona

Glöggur Twitter-notandi tók saman það helsta sem vakti athygli í fari Maradona á leiknum.

Hér dansar hann við nígerískan stuðningsmann

Hér fagnar hann fyrra marki Argentínu

Syfjaður í hálfleik

Og gefur síðan öllum á leikvangnum miðjufingurinn þegar Argentína var búin að tryggja sér sigur og áfram í 16 liða úrslit

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Maradona vekur athygli á þessu heimsmeistaramóti en í leiknum gegn Íslandi sást hann reykja vindil á leikvanginum sem er stranglega bannað. Hann sagðist ekki vita það og baðst afsökunar eftir leikinn

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing