Fitness-drottningin Margrét Edda Gnarr og unnusti hennar, Ingimar Elíasson, eiga von á barni í janúar. Margrét greindi frá þessu á samfélagsmiðlum þar sem hún segist afar þakklát.
Sjá einnig: Margrét Gnarr var heltekin af líkamsrækt: „Ég vona að þessi færsla veiti innblástur“
Margrét Edda og Ingimar eru búin að vera saman í töluverðan tíma en parið skráði sig í samband á Facebook í október á síðasta ári.
„Árum saman hélt ég að ég gæti ekki orðið ólétt. Ég hélt að átröskunin hefði skemmt fyrir mér en eftir meira en ár í bataferli gerðist þetta kraftaverk,“ skrifar Margrét á Instagram.