Auglýsing

Mark Wahlberg neitar því að hann noti stera: „Ég er náttúrulegur“

Leikarinn Mark Wahlberg þvertekur fyrir að hann noti stera til að byggja upp vöðvamassann sem hann er óhræddur við að flagga. Hann segist vera „náttúrulegur“ og að vöðvarnir séu ávöxtur mikillar vinnu.

Mark Wahlberg, Josh Duhamel kollegi hans og glímukappinn Roman Reigns eru á meðal þeirra sem sterasalinn Richard Rodriguez segir að hafi verið í hópi viðskiptavina sinna. Richard hefur verið ákærður fyrir sterasölu og peningaþvott og sagði í viðtali á dögunum að Mark, Josh og Roman hafi notað dulnefni þegar þeir keyptu sterana.

Mark var spurður út í málið af útsendara vefmiðilsins TMZ á dögunum og fullyrti að hann hafi ekki notað stera til að koma sér í form — mikil vinna sé á bak við líkamann. „Ég er náttúrulegur,“ sagði hann. Hann sagðist þó ekki vilja kæra Richard Rodriguez enda fengi hann þá bara meiri athygli í fjölmiðlum.

Mark Wahlberg er í ansi góðu formi og sést hér auglýsa fæðubótarefni á Instagram.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing