Auglýsing

Mátti ekki dreifa ösku Patreks í Seljalandsá, myndband af atvikinu fjarlægt af YouTube

Kona sem dreifði ösku Patreks, látins ástvinar, í Seljalandsá fyrir neðan Seljalandsfoss fékk ekki leyfi til þess og hefði aldrei fengið leyfi til þess. Fáist leyfi til að dreifa ösku hér á landi má aðeins gera það yfir haf eða öræfi, fáist til þess leyfi sýslumanns. Þetta kemur fram á Vísi.

Myndskeið af því þegar konan dreifir öskunni var sett inn á YouTube í gær og fylgdi textinn „Scattering Patrick’s ashes in Iceland“ með. Myndskeiðið hefur nú verið fjarlægt en það má aftur á móti sjá hér.

Árlega eru gefin út um fjörutíu leyfi af sýslumanninum á Norðurlandi eystra til að dreifa ösku og um helmingur þeirra er til erlendra ríkisborgara. Það eru aðallega Bandaríkjamenn, Breta og Þjóðverjar sem sækjast eftir leyfunum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing