Auglýsing

McConaughey ekki í framhaldi Magic Mike

Matthew McConaughey var stærsta stjarnan í kvikmyndinni Magic Mike en nú ætlar hann að skilja strákana eftir.

Óskarsverðlaunahafinn ætlar ekki að snúa aftur í framhaldið, Magic Mike XXL (þetta er í alvöru nafnið á myndinni). Channing Tatum, aðalleikari myndarinnar, var búinn að lýsa því yfir að hann væri að búast við því að allir leikararnir úr fyrri myndinni myndu taka þátt í framhaldinu.

Myndin verður engu að síður að veruleika og samkvæmt leikstjóranum Greg Jacobs verður hún svokölluð vegamynd.

Hún er nógu mikið öðruvísi svo að þið skiljið að við vildum gera framhald. Enginn getur sakað okkur um að gera sömu myndina aftur.

Flestir leikararnir úr fyrri myndinni snúa aftur, Tatum, Matt Bomer, Joe Manganiello og Kevin Nash.

En stelpur, hommar og bara allir í #TeamMcConaughey geta kysst þetta bless:

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing