Íslendingar virðast nokkuð meðvitaðir um áhrif sín á umhverfið en 64 prósent landsmanna segjast hafa breytt hegðun sinni mikið eða nokkuð síðastliðna 12 mánuði til að lágmarka áhrif sín á umhverfi og loftslagsbreytingar. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. Spurningarnar eru hluti af umhverfiskönnun MMR sem framkvæmd var dagana 23. – 29. maí 2019.
Sjá einnig: 68 prósent landsmanna hafa áhyggjur af hlýnun jarðar
Niðurstöðurnar fylgja í kjölfar umfjöllunar um áhyggjur landsmanna af hlýnun jarðar en umfjöllun um umhverfiskönnun MMR heldur áfram á næstu dögum.
Einungis 12 prósent svarenda kváðust ekki hafa gert neinar breytingar á hegðun sinni yfir síðastliðna 12 mánuði. Þegar spurt var um sértækar breytingar á hegðun kom í ljós að Íslendingar eru meðvitaðir um flokkun sorps og kváðust heil 86 prósent hafa síðastliðna 12 mánuði gert miklar eða nokkrar breytingar á flokkun sorps hjá sér.
Þá kváðust 62 prósent hafa gert miklar eða nokkrar breytingar á kauphegðun sinni. Landsmenn virðast þó nokkuð tregari til að gera breytingar á matar- og ferðavenjum en 60 prósent höfðu gert litlar eða engar breytingar á matarvenjum sínum og 69 prósent á ferðavenjum sínum.
Aðrar niðustöður:
– Af konum kváðust 75 prósent hafa gert miklar eða nokkrar breytingar á hegðun sinni, samanborið við 53 prósent karla. Karlar (17 prósent) voru jafnframt talsvert líklegri en konur (7 prósent) til að hafa ekki gert neinar breytingar á hegðun sinni.
– Fólk á aldrinum 18-29 ára (19 prósent) reyndist hvað líklegast til að hafa gert miklar breytingar á hegðun sinni en með auknum aldri fór hlutfalli þeirra stiglækkandi sem höfðu gert miklar breytingar á hegðun sinni.
– Af stuðningsfólki Samfylkingarinnar kváðust 85 prósent hafa gert miklar eða nokkrar breytingar á hegðun sinni og 79 prósent stuðningsfólks Vinstri grænna. Af stuðningsfólki Miðflokksins kvaðst 24 prósent ekki hafa gert neinar breytingar á hegðun sinni, 20 prósent stuðningsfólks Framsóknar og 19 prósent stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins.
Könnunin var framkvæmd dagana 23. til 29. maí 2019 og var heildarfjöldi svarenda 932 einstaklingar, 18 ára og eldri.