Auðjöfurinn Donald Trump tilkynnti á dögunum framboð sitt í embætti forseta Bandaríkjanna.
Trump virðist vilja herða innflytjendastefnu Bandaríkjanna og hefur kennt Mexíkóum um ýmislegt sem hefur miður farið og sagt þá stela störfum innfæddra.
Hann sagði meira að segja í tilkynningunni um framboð sitt að Mexíkóar kæmu með eiturlyf, glæpi og nauðgara til Bandaríkjanna.
Fernando Sosa, Bandaríkjamaður sem fæddist í Mexíkó, fékk sig fullsaddann af þessu og hefur nú hafið framleiðslu á Donald Trump rassatöppum (e. butt plug).
Sosa segir tappann vera svar sitt við ummælum Donalds Trump.
„Þú og þinn flokkur megið fara til fjandans. Ég var ekki sendur hingað af Mexíkóskum stjórnvöldum. Ég kom hingað í leit að Ameríska draumnum,“ segir hann.
„Ég er hvorki nauðgari né eiturlyfjasali. Ég er menntaður þrívíddarhönnuður og rek mitt eigið þrívíddarprentunarfyrirtæki. Þú ert opinber persóna og mér er frjálst að gera þig að rassatappa. Velkominn til Bandaríkjanna, móðurserðir!“