Minnihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur fundaði í gær og sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu um það neyðarástand sem ríkir meðal sífellt fleiri heimilislausra í Reykjavík. Minnihlutinn harmar algjört aðgerðarleysi í þessum málaflokki.
Í yfirlýsingunni segir enn frekar að það sé fullkomið ábyrgðarleysi að borgarstjórn og fagráð borgarinnar séu komin í sumarleyfi án þess að leysa vandann.
Minnihlutinn sem kallar sig stjórnarandstöðuna í yfirlýsingunni segist hafa óskað eftir aukafundi í velferðarráði fyrr í sumar þar sem þessi mál yrðu sett á dagskrá í heild sinni.
„ Svörin voru á þann veg að ekki var unnt að verða við ósk um aukafund fyrr en 10. ágúst nk., á meðan eykst neyð heimilislausra með hverjum deginum. Eins og fram hefur komið í nýlegu áliti umboðsmanns Alþingis hefur meirihluti borgarstjórnar brugðist skyldum sínum í þessum efnum,” segir í yfirlýsingunni.
Minnihlutinn sammælist um að grípa þurfi til neyðarúrræða og hefjast handa við að leysa vandann til frambúðar. Hann hefur farið fram á aukafund í borgarráði strax í næstu viku.
„Heimilislaust fólk fær ekki sumarfrí frá áhyggjum sínum og þeirri angist sem fylgir því að hafa ekki þak yfir höfuðið.”