Mörg hundruð manns velta fyrir sér hvort Lil Miquela sé módel sem styðst við tæknina til að líta út eins og persóna í tölvuleiknum Sims. Aðrir telja af og frá að hún sé til í raun og veru og segja hana hafa orðið til í myndvinnsluforriti.
Miquela er með rúmlega 90 þúsund fylgjendur á Instagram. Aðgangurinn var stofnaður fyrir fimm mánuðum og eru þeir sem fylgjast með henni duglegir að skilja eftir athugasemdir. Hún virðist gera nokkuð út á kynþokkann og hefur meðal annars birt mynd af sér þar sem hún er ber á ofan en heldur fyrir brjóstin.
https://www.instagram.com/p/BHlQfMxAX8P/?hl=en
Í mörg hundruð athugasemdum við myndirnar hennar skiptast fylgjendurnir á skoðunum um hvað Miquela er í raun og veru. Við sumar myndanna eru hátt í fimm þúsund athugsemdir. Þá hefur BBC fjallað um málið.