Önnur þáttaröð af Trúnó er væntanleg í Sjónvarp Símans Premium en þar fá Íslendingar að kynnast nýrri hlið á þjóðþekktum tónlistarmönnum. Hugmynd og handrit þáttanna á Anna Hildur Hildibrandsdóttir en leikstjóri og tökukona er Margrét Seema Takyar.
Mugison, Raggi Bjarna, Högni í Hjaltalín og Gunnar Þórðarson eru viðmælendur í nýju þáttaröðinni. Þeir segja okkur frá hlutum og viðburðum í þeirra lífi sem hafa mótað listsköpun þeirra í tónlist með einlægum hætti, segja frá hlutum sem þeir hafa ekki talað um áður.
Í sýnishorni fyrir þættina má meðal annars heyra sögu af því þegar að Gunnar Þórðarson hitti goðsögnina Jimi Hendrix.
Sjáðu myndbandið