Við munum eflaust flest eftir Lukas Rossi úr þáttunum Rockstar Supernova. Magni okkar náði langt í þáttunum á sínum tíma en Lukas kom, sá og sigraði.
Hann er greinilega enn þá að syngja, þó lítið hafi spurst til hans undanfarið. Hér fyrir ofan má heyra hann syngja rokkaða útgáfu af Adele-smellinum Hello.