Snapchat-stjarnan Sólrún Diego fagnaði útgáfu bókarinnar Heima á Hverfisbarnum í gær. Sólrún hefur notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum og á netinu þar sem hún hefur fjallað um þrif og hagnýt húsráð á skemmtilegan og nýstárlegan hátt.
Heima er fyrsta bók Sólrúnar og er hún uppfull af gagnlegum ráðum sem einfalt er að tileinka sér. Í bókinni tekur hún fyrir helstu þætti heimilisins og kennir skilvirkar aðferðir til að halda því hreinu og fallegu án mikillar fyrirhafnar.
Björn Bragi Arnarsson er útgefandi og ritstjóri bókarinnar og Snorri Björns tók myndirnar. Hlynur S. Andrason tók myndirnar úr partíinu.